Frá september 2024 hafa lögreglumenn borið rafbyssur við skyldustörf sem valdbeitingartæki. Á þeim tíma hefur slysum þeirra fækkað umtalsvert. Til vinnuslysa lögreglumanna teljast meðal annars þau sem verða þegar ráðist er á þá eða þeir lenda í átökum við skyldustörf.Á 24 mánaða tímabili, frá september 2022 til ágústloka 2024 var 221 vinnuslys tilkynnt. Frá september 2024 til ágústloka 2026 voru þau 67, eða um 70% færri.Samkvæmt tölum frá ríkislögreglustjóra er rafbyssu beitt í einu af hverjum níu skiptum sem hún er dregin úr slíðri. Frá september 2024 hefur hún verið dregin úr slíðri eða notuð til að ógna 130 sinnum en beitt 16 sinnum. OFBELDI Í GARÐ LÖGREGLUMANNA EKKI ÞAÐ SAMA OG VINNUSLYS Eins og greint var frá í fréttum RÚV í desember hefur ofbeldi og hótunum í garð lögreglumanna au