Dýragarðurinn í Jórvíkurskíri á Englandi hefur lýst því yfir að tígrisdýrið sem varð manni að bana í gær verði ekki aflífað.Tígrisdýrið réðst á manninn þegar hann fór inn á afgirt tígrisdýrasvæði dýragarðsins með þeim afleiðingum að hann lést.Í yfirlýsingu frá dýragarðinum segir að hugur þeirra sé hjá fjölskyldu mannsins. Þar segir jafnframt að dýragarðinum hafi verið lokað í dag og starfsfólk fengið áfallahjálp.Forsvarsmenn dýragarðsins segja fjölda fólks hafa haft samband til að spyrja um örlög tígrisdýrsins, sem heitir Altai.„Við fullvissum alla um að hann er óhultur og við góða heilsu og honum verður ekki lógað vegna atviksins,“ segir í yfirlýsingu frá dýragarðinum.