Eyjamenn og Austfirðingar vilja ekki vera í sama lögregluembætti

Austfirðingar og Eyjamenn vilja ekki vera í sama lögregluembætti og hafa óskað eftir fundi með dómsmálaráðherra. Hún hefur boðað fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú.Verði áform dómsmálaráðherra um sameiningu lögregluembætta að veruleika verða embætti lögreglunnar á Suðurlandi, Austurlandi og í Vestmannaeyjum sameinuð í eitt. Embættið mun ná allt frá Bláfjöllum að Vopnafirði. Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar og Fjarðabyggðar hafa ályktað gegn áformunum.Eyþór Harðarson, formaður bæjarráðs Vestmannaeyja, segir að sérstaða Vestmannaeyja sem eyjasamfélags, með tilliti til samgangna og almannavarna, kalli á sjálfstætt lögregluembætti.„Við erum bara ekki að sjá að það geti hentað Vestmannaeyjum að vera ekki með lögreglustjóra. Svo verðum við eiginlega bara að líta til sögunnar að það var útaf sérstöð
Eyjamenn og Austfirðingar vilja ekki vera í sama lögregluembætti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd