„Ég hef oft hugsað um þennan dag og þessa stund“

Um helgina eru 40 ár frá leiðtogafundi Reagans og Gorbatsjov í Höfða. Leiðtogafundurinn olli straumhvörfum í Kalda stríðinu og setti allt í hliðina í íslensku samfélagi. Kjarnorkuógnin og vopnakapphlaupið urðu til þess að börn og ungmenni höfðu miklar áhyggjur.Kristín Helga Þórarinsdóttir var ein þeirra og safnaði ári áður, ásamt bekkjarfélögum sínum, undirskriftum átta þúsund ungmenna þar sem skorað var á leiðtoga stórveldanna að hætta vígbúnaðarkapphlaupinu. Raisa Gorbatsjov hitti bekkinn á meðan leiðtogarnir sátu á fundi.„Og þegar hún kom, það er mjög eftirminnilegt. Við stóðum úti á tröppum skólans og það kemur bílalest af svörtum Volgu-bifreiðum og sægur af fréttamönnum og við komumst varla upp í kennslustofuna fyrir fólki. En Raisa var bara mjög afslöppuð, spurði margs og tók sér bar
„Ég hef oft hugsað um þennan dag og þessa stund“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd