Páfinn á leið í aðgerð

Leó páfi XIV er á leið í aðgerð á næstu dögum. Hnúður fannst á lunga hans við reglubundna læknisskoðun nýlega.Páfinn tilkynnti þetta á Péturstorginu í Róm í dag. Hann segir að hnúðurinn hafi fundist snemma.Aðgerðin verður framkvæmd á Gemelli-spítalanum í Róm snemma í næstu viku. Þar er sjúkrastofa sem er sérstaklega ætluð páfanum. Búist er við því að það taki páfann um viku að jafna sig.Páfinn segir að fyrirhuguð heimsókn hans til Úrúgvæ, Argentínu og Perú í nóvember sé enn á dagskrá.
Páfinn á leið í aðgerð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd