Ósætti á Suðurlandi vegna fyrirhugaðra komugjalda

Fólk í sveitarstjórnum og ferðaþjónustu á Suðurlandi er ósátt við áformað náttúru- og innviðagjald á ferðamenn sem ætla Gullna hringinn.„Það sem við höfum verið að mótmæla er fyrst og fremst það að það skuli verið að targeta einhverja þrjá staði á Suðurlandi, á Bláskógasvæðinu. Í staðinn fyrir að fara í eitthvað almennara þar sem við værum að tala um öll þau svæði sem ríkið á úti um allt land,“ segir Ingunn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Suðurlandi (SASS).Til stendur að leggja nýtt gjald á ferðamenn sem ætla á Þingvelli, Gullfoss og Geysi frá og með maí á næsta ári. Þá eru uppi áform um að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11 í 24%.Ingunn veltir því fyrir sér hvort það samræmist jafnræðisreglu að byrja að leggja á komugjöld einungis við Gullna hringinn.Hún segir fólk
Ósætti á Suðurlandi vegna fyrirhugaðra komugjalda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd