Niðurstöður „Samtalsins“ svokallaða eru kynntar í Hörpu í dag.Spurningin „Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“ var rædd víða um land í gær. Öllum sem vildu var boðið að taka þátt.Unga fólkið stýrði umræðum gærdagsins og kynnir niðurstöður og inntak samtalsins í dag. Mest var rætt um gervigreind, samfélagsmiðla, menntun og samfélagið.Verkefnið er að frumkvæði Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, sem heldur ávarp.Þá koma fram Stúlknakór Kársness, Stúlknakór Reykjavíkur, Tjarnarkórinn, Fjallabræður og Karlakór Reykjavíkur sem syngja lög helguð friði og bjartri framtíðarsýn.