Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, var kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna (World Medical Association, WMA) í gær. Hún tekur við embætti í október 2027.Þetta kemur fram á Facebook-síðu Læknafélagsins.Ársfundur WMA haldinn í Rotterdam í vikunni. Steinunn var kosin með 97,8% atkvæða.Þetta er í annað sinn sem Íslendingur er kosinn forseti WMA. Jón Snædal var forseti samtakanna 2007–2008.