Niðurstöður þjóðarsamtals sem fram fór á tuttugu og þremur stöðum á landinu í gær verða kynntar í Hörpu í dag. Forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta segir þátttakendur í Háskóla Íslands hafa kallað eftir fleiri slíkum samtölum. Umræðurnar hafi verið uppbyggilegri þegar fólk sat augliti til auglitis en það eigi að venjast úr athugasemdakerfum.