Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lýsir yfir vonbrigðum með ummæli Bandaríkjaforseta í gær um að Úkraína þurfi nýjan forseta. Þá segir hún samning Trumps við Pútín um kaup á dísilolíu ekki réttu skrefin á þessum tíma. Nær væri að herða þvingunaraðgerðir gegn Rússum.„Fyrst og síðast er hugur minn hjá úkraínsku þjóðinni sem er búin að búa núna í á fimmta ár við hörmulegar afleiðingar innrásarstríðsins og grimmilegar árásir Rússa. Ég, eins og aðrir leiðtogar, lýsi yfir vonbrigðum með þessa ákvörðun forseta Bandaríkjanna,“ sagði Þorgerður Katrín í viðtali í hádegisfréttum. EKKI BESTU SKILABOÐIN Á ÞESSUM TÍMA Utanríkisráðherra segir Ísland eðlilega í hópi með hinum Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum sem vilji auka enn frekar á þrýsting á Rússland. „Við erum að sjá að þvingu