Nýr sjóður leitar að lausnum fyrir fólk með krabbamein

Krabbameinsfélag Íslands hefur sett á laggirnar nýjan sjóð sem ætlað er að styrkja þjónustu við fólk með krabbamein og aðstandendur þess. Sjóðurinn ber heitið Framfarasjóður og er stofnfé 75 milljónir. Sigríður Mogensen er formaður stjórnar sjóðsins.„Flestir Íslendingar hafa líklega verið snertir af þessum sjúkdómi einhvern tímann á lífsleiðinni. Núna erum við að kasta netinu út í samfélagið og sjá hvaða hugmyndir eru þar úti sem gætu hjálpað sjúklingum og aðstandendum þeirra og eflt forvarnir.“Stjórn sjóðsins mun sjá um úthlutun ásamt sérstöku fagráði sem verður stjórninni innan handar. Meðstjórnendur Sigríðar eru þau Rögnvaldur Sæmundsson og Vala Smáradóttir. Unnið er að því að klára úthlutunarreglur sjóðsins og auglýst verður eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á næstunni. Styrkirnir ve
Nýr sjóður leitar að lausnum fyrir fólk með krabbamein

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd