Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að svo virðist vera sem Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hafi hana á heilanum. Hún segir ósætti þeirra á milli algjöra einstefnugötu, ekkert sé til í því að forsætisráðherra hafi sagt ósatt um vaxtabótaauka sem til hafi komið eftir samningaviðræður VR og Samtaka atvinnulífsins.