Úkraínumenn hætta árásum þegar Rússar hætta þeim

Úkraínumenn eru reiðubúnir að hætta árásum á olíuinnviði í Rússlandi um leið og Rússar hætta árásum á orkuinnviði í Úkraínu. Þetta sagði Volodymyr Zelenský í færslu á samfélagsmiðlum í morgun. Bandaríkjaforseti gagnrýndi Úkraínuher harðlega í gær fyrir árásir á olíubirgðastöðvar í Rússlandi, stuttu eftir að hann ræddi við Pútín í síma og samdi við hann um kaup á dísilolíu.Zelenský sagði enn fremur í færslu sinni í morgun að í öllum tilraunum til að draga úr spennu milli ríkjanna verði jafnt yfir báða að ganga. Þá þurfi traustar tryggingar að liggja að baki.Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu.EPA / VALDA KALNINA
Úkraínumenn hætta árásum þegar Rússar hætta þeim

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd