Pólska lögreglan hefur fengið upplýsingar um mögulegar tilraunir til að ráða Donald Tusk, forsætisráðherra, og Wladyslaw Kosiniak-Kamysz, varnarmálaráðherra, af dögum.„Lögreglu barst tilkynning um mögulega morðtilraun gegn Donald Tusk forsætisráðherra og Wladyslaw Kosiniak-Kamysz, aðstoðarforsætisráðherra og varnarmálaráðherra,“ sagði Karolina Galecka, talskona innanríkisráðuneytisins, á blaðamannafundi. Tilkynningin barst í gegnum öryggisþjónustu ríkisins (SOP).Innanríkisráðuneyti Póllands hefur skipað yfirvöldum að grípa til aðgerða vegna þessa, segir talsmaður innanríkisráðuneytisins í tilkynningu.Ekki hefur verið gefið upp hvers konar árásir voru í bígerð, né hvenær og hvar átti að fremja þær.Lögregla og öryggisstofnanir Póllands funduðu í morgun um viðbrögð við þessum nýju upplýsingum