Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið sex tilkynningar um skemmdarverk á bifreiðum í Vesturbæ og miðbæ Reykjavíkur í október.Árni Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að svo virðist vera sem einhver faraldur sé í gangi. Hann segir málið í rannsókn.Lögreglan greindi frá því á fimmtudag að þrjár tilkynningar hefðu borist um skemmdarverk á kyrrstæðum bifreiðum í Vesturbæ. Þar segir að skemmdarvargurinn, eða skemmdarvargarnir, hafi rispað bifreiðarnar með lykli eða öðru áhaldi svo mikið tjón hlaust af.Í hverfahópi Vesturbæjar Reykjavíkur á Facebook má sjá að hakakross var rispaður á minnst einn bíl í hverfinu á miðvikudag.Síðan á fimmtudag hafa þrjár tilkynningar til viðbótar borist lögrelgu, tvær vegna skemmdarverka á bifreiðum í Vesturbæ og ein í miðbæ Reykjavíkur.