Hútar vara ferðalanga og flugfélög við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu í fyrstu yfirlýsingu sinni eftir mannskæða árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad höfuðborg Sádí-Arabíu í gær þar sem tólf létust og 309 manns særðust. Um er að ræða þriðju árásina á sádí-arabíska flugvelli í vikunni.