Landlæknisembættið hefur fylgst með þróun einmanaleika hjá þjóðinni frá 2016.Niðurstöðurnar sýna að einmanaleiki hefur aukist lítillega á þeim tíma.Einmanaleiki hefur áhrif á fólk á öllum aldri og alls staðar í samfélaginu.Vika einmanaleikans er nú haldin í annað sinn á vegum Kvenfélagasambands Íslands.Henni er ætlað að vekja til umhugsunar og hvetja til aukinnar samkenndar og mannlegra samskipta. EINMANALEIKI MESTUR MEÐAL YNGRI KYNSLÓÐA Sigrún Daníelsdóttir er teymisstjóri geðræktar hjá Landlækni. Hún segir það mikilvægt að fylgjast með þróun einmanaleika yfir langan tíma.„Við höfum ekki séð aukningu hjá yngsta hópnum en einmanaleikinn er þar mestur samt sem áður.“Fleiri í aldurshópnum 25-34 ára segjast þó finna fyrir einmanaleika en áður.Sigrún segir að mesti munur milli hópa sjáist þ