Í Liechtenstein er við lýði það sem kallað er stjórnarskrárbundið furstadæmi. Furstinn - eða prinsinn eins og kannski væri réttara að kalla hann, heitir Hans Adam, en sonur hans, erfðaprinsinn Alois Philipp Maria Liechtenstein, tók hins vegar við hlutverkinu - og völdunum sem því fylgja, árið 2004.Sem erfðaprins og verðandi fursti, þá hefur Alois talsvert mikil völd og ekki síður áhrif: titilinn og embættið eru þannig mun meira en einhverjar skrauthúfur og arfleið frá þeim tíma þegar konungar, drottningar og prinsar réðu lögum og lofum í Evrópu fyrr á öldum.Alois getur þannig vísað ríkisstjórn landsins frá, skipað dómara, hafnað því að staðfesta lög sem þingið í Liechtenstein samþykkir - og það sem meira er: hann getur hafnað því að viðurkenna ákvörðun sem borin er undir þjóðaratkvæðagreið