Tvær nýjar deildir eru á teikniborðinu hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri. Markmiðið með þeim er að skapa svigrúm innanhúss, fækka innlögnum og tryggja betra flæði, að sögn forstjóra.„Önnur er bráðadagdeild lyflækninga. Þetta er svona deild sem á að reyna að auka súrefnið inni í húsinu þannig þeir sem mögulega geta nýtt sér þá þjónustu þurfa ekki á innlögn á lyflækningadeild að halda,“ segir Guðjón Hauksson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri.Bráðadageildin hefur þegar tekið til starfa og Guðjón vonast til að dagdeild skurðlækninga fylgi fljótt í kjölfarið. Starfsfólk hafi unnið þrekvirki við erfiðar aðstæður og þröngan húsakost í mörg ár og þessar nýju deildir eiga að gefa klínískri starfsemi sjúkrahússins aukið vægi.„Það er dagdeild skurðlækninga sem við erum í startholunum með að setja á laggi