Að minnsta kosti tólf eru látnir og yfir þrjú hundruð eru særðir eftir árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu, í gær. Nokkrir hinna særðu eru í lífshættu.AFP fréttaveitan hefur eftir einum flugfarþega sem var staddur á alþjóðaflugvellinum í Ríad þegar árásin var gerð að árásin hafi verið gerð á farþegahlið skammt frá þar sem hann var staddur. Hann sá marga slasaða og fólk reyndi að hlaupa í burtu.Starfsemi flugvallarins hefur verið stöðvuð tímabundið og fjölda flugferða aflýst. Erlend sendiráð hafa hvatt ríkisborgara sína til að forðast alþjóðaflugvöllinn í Ríad. Hútar hafa varað flugfarþega við því að fara um flugvelli Sádí-Arabíu.Menntamálaráðuneytið í Sádi-Arabíu hefur ákveðið að öll kennsla í skólum í Ríad verði færð yfir í fjarkennslu í viku.Aðalframkvæmdastjóri Samei