Veðurstofan varar við stormi á Suðurlandi og Faxaflóa

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna storms á Suðurlandi og Faxaflóa í kvöld og nótt.Vaxandi lægð nálgast landið með suðaustan hvassviðri eða stormi sunnan- og suðvestan til og rigningu. Á Suðurlandi tekur veðurviðvörun gildi klukkan 22 og gildir til 4 í fyrramálið. Þar er búist við suðaustan 18 til 23 m/s en staðbundnum vindhviðum yfir 35 m/s. Ferðaveður getur orðið varasamt.Á Faxaflóa geta hviður náð 35 m/s, til dæmi á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli. Vegagerðin varar við að hviður á Reykjanesbraut geta náð 30 metrum á sekúndu seint í kvöld og nótt. Í pistli veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að skilin gangi yfir í nótt:Á Grænlandshafi er vaxandi lægð á norðurleið og skilin frá henni nálgast landið. Það verður því hægt vaxandi suðaustanátt með dálítilli vætu en á
Veðurstofan varar við stormi á Suðurlandi og Faxaflóa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd