Hundruð Íslendinga voru send til afplánunar í dönskum fangelsum á 18. og 19. öld. Dánartíðni íslenskra fanga var hærri en fanga af öðrum þjóðernum og rúmlega 60% Íslendinganna létust í prísundinni. Sá skammlífasti lifði í tæpan mánuð. Sigríður Hjördís Jörundsdóttir sagnfræðingur segir að fangarnir hafi komið til Kaupmannahafnar með haustskipum danskra kaupmanna eftir að hafa verið í harðindaástandi á Íslandi. „Þannig að maður getur ímyndað sér hversu líkamlega skertir þeir voru orðnir,“ segir Sigríður og bætir við að þeir hafi ekki verið vanir þeim pestum sem grasseruðu í fangelsum Kaupmannahafnar.Þetta kemur fram í þáttaröðinni Betrun á Rás 1 þar sem fjallað er um fangelsismál Íslendinga í fortíð og nútíð. Í HLEKKJUM ALLAN SÓLARHRINGINN Langsamlega stærstur hluti íslensku sakamannanna