40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða

Óhætt er að segja að allt hafi farið á annan endann í íslensku samfélagi árið 1986 þegar tilkynnt var með aðeins tólf daga fyrirvara að leiðtogar Bandaríkjanna og Sovétríkjanna ætluðu að hittast og halda fund í Reykjavík.Umræðuefnið var heldur ekki hversdagslegt heldur ætluðu þeir Ronald Reagan og Mikhaíl Gorbatsjev að ræða umfangsmikla afvopnun stórveldanna sem átt höfðu í köldu stríði nánast frá lokum síðari heimsstyrjaldar.Kjarnorkuógnin var mjög raunveruleg í huga þeirrar kynslóðar sem lifði þessi óvenjulegu ár þar sem Bandaríkin og Sovétríkin skiptu heiminum upp í áhrifa- og jafnvel stríðssvæði. Aldrei kom til beinna átaka milli þeirra þótt nokkrum sinnum mætti litlu muna.Minnistæðust eru sennilega Kúbudeilan árið 1962 og atvik árið 1983 þegar hermálayfirvöldum í Sovétríkjunum barst f
40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd