Drónaárás á rússneskt gagnaver

Þetta er þriðja árás Úkraínuhers á gagnaver rússneska fyrirtækisins Yandex á innan við viku. Fyrirtækið hefur verið kallað rússneska Google, en það rekur vinsælustu vefleitarvél Rússlands, auk matar- og leigubílapöntunarsmáforrita sem notuð eru af tugum milljóna manna.Fyrirtækið greindi frá árásunum á Telegram. Enginn særðist í árásinni en tjón varð á gagnaverinu og starfsemin hefur verið stöðvuð. Unnið er að viðgerðum.Á föstudag gerði Úkraínuher drónaárás á gagnaver í Kaluga-héraði sem raskaði starfseminni og olli truflunum. Á fimmtudag kviknaði eldur í byggingu Yandex í Ryazan-héraði eftir drónaárás sem hafði mikil áhrif á flutninga og rafræn viðskipti.
Drónaárás á rússneskt gagnaver

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd