Anna Yagi, japönsk kona á fertugsaldri, fannst látin á hótelherbergi í Okinawa í byrjun mánaðarins eftir að hafa verið kyrkt.The Times segir að lögreglu hafi tekist að bera kennsl á tvítugan bandarískan hermann, Devin Ballard, í upptökum úr öryggismyndavél á hótelinu. Hann var stuttu síðar handtekinn nærri Futenma, bandarísku herstöðinni þar sem hann er útsendur. Hermaðurinn neitar öllum ásökunum.Ekki liggur fyrir hvernig Yagi og Ballard þekktust eða hversu mikið. Samskipti japanskra kvenna og bandarískra hermanna hafa lengi verið hluti af daglegu lífi á Okinawa. Morðið hefur þó vakið hörð viðbrögð í Japan enda ekki í fyrsta sinn sem bandarískir hermenn beita japanskar konur ofbeldi.Forsætisráðherra Japan, Sanae Takaichi, fordæmdi morðið harðlega. Héraðsstjóri Okinawa, Genta Koja, sagði mo