Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu

Lögregla við störf á vettvangi í Erie.AP/WJET / UncreditedMaður á fimmtugsaldri skaut sjö ættingja sína og fjölskylduvin á heimili í borginni Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær, áður en hann tók sitt eigið líf.Meðal þeirra sem maðurinn drap voru eins árs gömul stúlka, fimm ára drengur og ófrísk kona sem var komin átta mánuði á leið. Hin fórnarlömb mannsins voru konur og menn á aldrinum 19 til 51 árs.Borgarstjóri Erie, Daria Devlin, sagði samfélagið slegið yfir morðunum – nágrannar og vitni, fjölskyldur og aðstandendur fólksins, jafnt sem lögreglumenn og bráðaliðar sem komu fyrst á vettvang. Fjölmiðillinn Erie News Now segir að viðbragðsaðilum verði boðin áfallahjálp.
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd