Fellibylurinn Isaias sem skall að landi við Flórída og Alabama í gær hefur raskað olíuframleiðslu Bandaríkjanna við strendur Mexíkóflóa.Orkumálaráðherra Bandaríkjanna, Chris Wright, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem segir að olíufyrirtækin ExxonMobile og BP AMerican fái hvor um sig allt að tvær milljónir tunna af hráolíu úr varaforðanum til að fyrirtækin geti viðhaldið vinnslunni í olíuhreinsunarstöðvum.Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bandaríkjastjórn heimilar losun hráolíu úr varaforða landsins.Frá því að stríðið hófst í Mið-Austurlöndum í lok febrúar hafa 132 milljónir tunna verið losaðar úr varasjóðnum, sem telur um 415 milljónir tunna. Bandaríkjastjórn hefur heitið því að losa smám saman 172 milljónir tunna af hráolíu.