Þúsundir mótmælenda voru handteknir í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, í dag þegar mótmælt var breytingum á kjörskrá landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu ungmennahreyfingarinnar Kakkalakkaflokksins Janta, sem stóð fyrir mótmælunum.Hreyfingin segir yfir 15 þúsund manns hafa verið handtekna, þar á meðal stofnanda hennar og tvo aðra leiðtoga. Indverska dagblaðið The Hindu greinir hins vegar frá rúmlega fimm þúsund handtökum.AFP-fréttastofunni hefur ekki tekist að staðfesta fjöldann og lögregla hefur ekki svarað fyrirspurnum þeirra um málið.Yfirvöld gripu til umfangsmikilla öryggisráðstafana fyrir mótmælin. Þúsundir lögreglumanna voru kallaðar út, tugum neðanjarðarlestarstöðva lokað og meira en 200 lestarferðum aflýst.Þá var farsímanet tímabundið tekið úr sambandi í nágrenni mótmælasvæðisins