Tóku samtalið um land allt

„Samtalið“ svokallaða fór fram í dag, þar sem fólk hittist, ræddi framtíðina og hvernig samfélag það vill. Verkefnið heitir „Tölum saman“ og varð til að frumkvæði Höllu Tómasdóttur forseta Íslands. Á Bessastöðum í dag var einnig efnt til samtals.Öllum sem vildu var boðið að taka þátt. Í morgun fékk ungt fólk þjálfun í því hvernig á að leiða samtalið – sem hófst svo eftir hádegi í dag. Meðal umræðuefna voru áhrif gervigreindar og samfélagsmiðla, samskipti, samfélagið og menntun.Samtalið var haldið í yfir 20 skólum víða um land í dag. Meginspurningunni – Hvernig samfélag viljum við skapa saman? – verður reynt að svara á morgun þegar niðurstöður samtalsins verða kynntar í Hörpu.
Tóku samtalið um land allt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd