Vinsældir Emmanuel Macron Frakklandsforseta hafa ekki mælst minni síðan hann tók við embætti árið 2017, samkvæmt skoðanakönnun sem birt var í dag. Í könnun Ipsos BVA-Cesi sögðust aðeins 15 prósent svarenda hafa jákvætt álit á Macron. Það er einu prósentustigi minna en mánuði áður og lægsta hlutfallið síðan hann tók við forsetaembætti. Könnunin birtist á sama tíma og eldsneytisverð í...