Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi, segir líflína fólks á Gaza að fólk muni eftir þeim, fjármagni hjálp sem það þurfi og ýti á stjórnmálamenn að tryggja frið.Mikil neyð ríkir á Gaza.„Þó krísur séu í veldisvexti í heiminum þá erum við þarna með tvær milljónir manna sem eru í landfræðilegu búri sem er stöðugt verið að minnka og gera aðstæður þeirra ómennskari,“ segir hún.Fyrir ári í dag var vopnahléi lýst yfir á Gaza. Þann dag voru sýndar í fréttum myndir af tugþúsundum Palestínumanna á leið heim í norðurhluta Gaza, eftir að Ísraelsher hafði hrakið þá til suðurs.Mikil neyð ríkir enn á Gaza þrátt fyrir að vopnahlé hafi tekið gildi fyrir ári. Íbúar þar segja vopnahléið aðeins orðin tóm.Fólk kom að heimilum sínum sem voru rústir einar. Þá höfðu Ísraelar gert harðar árásir í