Mestu skiptir að engan sakaði

Innan við tvær klukkustundir tók að slökkva eldinn í álverinu í dag og var kerskáli tekinn úr rekstri á meðan.„Það er ekki vitað að svo stöddu hvað olli eldinum,“ segir Sunna Björg Helgadóttir, forstjóri Rio Tinto á Íslandi. „En það sem skiptir mestu máli er að það urðu engin slys á fólki. Bíllinn var mannlaus þegar kviknaði í honum og enginn var í kring. Viðbragð okkar starfsfólks og viðbragðsaðila var algerlega til fyrirmyndar“Fjórtán manns voru við störf og þeim brá, segir Sunna Björg, sem vann áður meðal annars sem kerskálastjóri. Slökkvilið notaði duft, ekki vatn.„Það er ekki hægt að nota vatn inni þar sem við erum að vinna með mikið rafmagn og mikinn straum. Þannig að þeir þurfa að nota duft og þurftu í raun að fjarlægja tækið aðeins til þess að geta slökkt almennilega í því.“
Mestu skiptir að engan sakaði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd