Karlmaður er látinn eftir árás tígrisdýrs í dýragarði skammt frá borginni Doncaster í Jórvíkurskíri á Englandi. Lögregla segir manninn hafa farið inn á afgirt svæði.Viðbragðsaðilar voru kallaðir að dýralífsgarðinum í Jórvíkurskíri (e. Yorkshire Wildlife Park) klukkan hálftvö á staðartíma í dag. Lögreglan í Jórvíkurskíri segir að maðurinn hafi verið alvarlega særður eftir árás tígrisdýrsins og hann hafi verið úrskurðaður látinn á vettvangi.Dýragarðinum var lokað og verður hann lokaður minnst fram á mánudag, þótt lögregla segi almenningi að almenningi stafi ekki nein hætta af tígrisdýrinu eða öðrum dýrum í garðinum.Í dýragarðinum geta gestir fylgst með tígrisdýrum af 300 metra löngum upphækkuðum göngustíg, þar sem dýrin eru sögð ráfa frjáls um skóg- og graslendi.Í dýragarðinum er einnig hægt