Endurheimt bílastæða sem koma í stað bekkja og blómapotta í miðborg Reykjavíkur er áhyggjuefni að mati formanns Samtaka um bíllausan lífsstíls. Formaður umhverfis-og skipulagsráðs borgarinnar segir um eðlilega ráðstöfun að ræða fyrir veturinn. Báðir formenn eru opnir fyrir frekara samtali um málið og vilja draga umræður um bílastæði og samgöngumál upp úr skotgröfunum.