Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar

Verslunarmiðstöðin Smáralind var opnuð á þessum degi fyrir 25 árum. Smári úr Smáraskóla og Linda úr Lindaskóla fengu þann heiður að opna þessa stærstu verslunarmiðstöð landsins.„Þetta var bara frekar súrrealískt móment, ég var náttúrulega bara 11 ára á þessum tíma og ég man bara að þegar var ýtt á takkann þá fór allt af stað og það var bara frekar gaman að því,“ segir Smári Páll Svavarsson í samtali við fréttastofu í tilefni af 25 ára afmæli Smáralindar.Linda Margrét Gunnarsdóttir, sem var níu ára við opnun Smáralindar fyrir 25 árum, tekur undir að það hafi verið bæði spennandi og eftirminnilegt að taka þátt í opnunarhátíðinni.„Maður var með kvíðahnút en samt ótrúlega gaman. Þetta var mjög skemmtilegur tími. Maður var mjög montinn,“ segir Linda.Smári úr Smáraskóla og Linda úr Lindaskóla mu
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd