Donald Trump Bandaríkjaforseti vill að Úkraínumenn velji sér annan forseta sem geti bundið enda á stríð landsins við Rússland.Hann er Volodomyr Zelensky reiður vegna árása Úkraínu á rússneskar olíuhreinsunarstöðvar sem hafa orðið til hækkunar á verði dísilolíu.Trump sagði blaðamönnum í Hvíta húsinu að hann hefði tjáð Zelensky að hann mætti gera „það sem honum sýndist“ gegn Rússlandi, fyrir utan það að ráðast á hreinsistöðvarnar.Í gær gerðu Trump og Pútín Rússlandsforseti með sér samning um kaup á átján hundruð þúsund tonnum af dísilolíu næstu þrjá mánuði.Zelensky gagnrýndi samkomulagið harðlega. Hann sagði að með þessu fengju Rússar aukið fjármagn til stríðsreksturs í Úkraínu.Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ítrekaði stuðning sinn við Úkraínu á samfélagsmiðlinum X í dag. Hú