Fjöldi fólks gekk kröfugöngu frá Hlemmi að Austurvelli í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu í dag, 10. október.Í tilkynningu Félagsins Íslands-Palestínu og BDS Íslands fyrir kröfugönguna var þess krafist að íslensk stjórnvöld létu verkin tala: aðgerðir, ekki yfirlýsingar.Fjöldi fólks kallaði eftir aðgerðum íslenskra stjórnvalda til að tryggja réttindi Palestínumanna í kröfugöngu frá Hlemmi að Austurvelli.„Íslensk stjórnvöld voru nýlega meðal 12 ríkja sem sendu frá sér yfirlýsingu um fyrirhugaðar aðgerðir gegn viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtökubyggðum Ísraela á hernumdum svæðum Palestínu. Ekkert hefur hins vegar komið fram hvaða aðgerða Ísland hyggst grípa til til að fylgja yfirlýsingunni eftir,“ segir í tilkynningu um kröfugönguna.Þar segir jafnframt að stuðningur alme