Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja Höllu Gunnarsdóttur formann VR munu gera tilraun til að sölsa undir sig Alþýðusambands Íslands á aðalþingi sambands í næstu viku. Hún segir Höllu hafa komist upp með að draga Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld á asnaeyrum án afleiðinga, þvert á móti hafi hún verið verðlaunuð fyrir það í stað þess að trúnaði væri haldið við forystu verka og láglaunafólks.