Bæjarráð Vestmannaeyja segir að fyrirtækið sem lagði nýju vatnslögnina þangað hafi viðurkennt í vikunni að tjónið á henni megi rekja til mistaka við lagninu. Þá hafi verkferlar um borð ekki verið viðunandi.„Það sem við auðvitað krefjumst er að fá jafngóða lögn og nýja lögn hérna á milli. Við vorum að kaupa það, við ætlum ekki að sætta okkur við það, eðlilega, við viljum fá lögnina sem við keyptum,“ segir Eyþór Harðarson, formaður bæjarráðs.Hann reiknar með að þau fái tjónið bætt að fullu. Heildarkostnaður hleypur á þremur milljörðum.Nýja lögnin átti að vera til vara fyrir lögnina sem veitir vatni til Eyja núna en hún laskaðist fyrir þremur árum þegar akkeri togarans Hugins VE hafnaði á henni. Í SKOÐUN MILLI RÁÐUNEYTA Vestmannaeyjabær reynir að fá nýju lögnina viðurkennda sem almannavarn