Eldur kviknaði í áltökubíl í kerskála eitt í álverinu í Straumsvík laust fyrir hádegi. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur sent þrjá bíla á vettvang.Samkvæmt upplýsingum fréttastofu kviknaði í áltökubíl sem stóð í ljósum logum. Svartan reyk liggur frá álverinu.Þórdís Arnljótsdóttir fréttamaður er á vettvangi. Hún segir að kolsvartan reyk hafi fyrst lagt frá þakinu en nú sé hann orðinn hvítur.Fólk sem er inni við vinnu er ekki í hættu.Eldur logaði í áltökubíl inni í álverinu í Straumsvík. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir snúið að slökkva eldinn, duft var notað við slökkvistörf sem gekk greiðlega. ELDURINN STAÐBUNDINN Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir eldinn staðbundinn í farartækinu og því ekki hætta á að hann breiðist út.Hann segir þó