Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingarinnar

Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, hefur verið kjörinn nýr varaformaður flokksins. Þetta gerðist á flokksstjórnarfundi í Suðurnesjabæ síðdegis.Hann var einn í framboði og var því sjálfkjörinn.Guðmundur Ari verður varaformaður út kjörtímabil Guðmundar Árna Stefánssonar, fyrrverandi varaformanns. Annað varaformannskjör verður svo haldið á landsfundi Samfylkingarinnar í vor.Guðmundur Árni tilkynnti að hann ætlaði að hætta sem varaformaður í maí.
Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingarinnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd