Forsætisráðherra lokar ekki á Evrópu þrátt fyrir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir hagsmuni Íslands á róstusömum tímum tryggða með þéttri samvinnu við öll bandalagsríki og vinaþjóðir Íslands.„Þó að við virðum niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um að hefja ekki aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið þá lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu eða gröfum undan samningnum um Evrópska efnahagssvæðið,“ sagði hún í ræðu sinni á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í Suðurnesjabæ í dag.Hún segir þjóðaratkvæðagreiðsluna ekki hafa tekið afstöðu um það. „Þvert á móti er það stefna Samfylkingar og ríkisstjórnar að við stöndum okkur nú í stykkinu og styrkjum EES-samninginn enn frekar í sessi.“Kristrún segir að treysta eigi sambandið við bæði Bandaríkin og Kanada auk næstu nágranna Íslands – Færeyjar og Grænland. ÞAKKAR GUÐMUNDI ÁRN
Forsætisráðherra lokar ekki á Evrópu þrátt fyrir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd