Hundrað tonna bor var fluttur frá Hellisheiði að Engjateig í Laugardal í morgun þar sem Veitur tæla að bora fyrir heitu vatni.Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona vatnsmiðla hjá Veitum, segir flutninginn hafa gengið mjög vel.„Borinn er mættur á Engjateiginn þar sem hann mun rísa á næstu dögum,“ segir Brynja.Borun fyrstu holunnar af fjórum hefst í seinni hluta næstu viku. Brynja segir Veitur leggja áherslu á að halda truflun í lágmarki. Borinn er rafknúinn og hljóðlátur.„Við höfum ekki áhyggjur af því að það verði mikill hávaði á svæðinu og borstaðurinn verður líka vel girtur af og vaktaður allan sólarhringinn til að tryggja öryggi í kringum svæðið. Svo höfum við lagt mikla áherslu á virka upplýsingagjöf til allra íbúa og hagaðila á svæðinu og munum að sjálfsögðu halda því áfram.“