Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu gagnrýnir harðlega samning sem Trump gerði við Pútín í gær um kaup á 1.800.000 tonnum af dísilolíu af Rússlandi á næstu þremur mánuðum.Zelensky segir samninginn vera fjárfestingu í stríði sem ætti að reyna að ljúka fremur en að lengja. Í færslu á X í dag sagði Zelensky að með árásum Rússlandshers á Úkraínu í dag væru Rússar að sýna þakklæti sitt fyrir samninginn. „Í dag sýndi Rússland þakklæti sitt með því að varpa fimm sprengjum á íbúahús í Zaphorsía,“ skrifaði Zelensky.Þrír öldungadeildarþingmenn Demókrata á Bandaríkjaþingi, þau Jeanne Shaheen, Chuck Schumer og Elizabeth Warren, hafa kallað samninginn svik við Úkraínu, bandamenn í Evrópu og þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Í sameiginlegri yfirlýsingu saka þau Trump um að fjármagna stríðsvél Rússlands undir þ