Hundrað tonna bor fluttur í Laugardal

Hundrað tonna bor verður fluttur frá Hellisheiði að Engjateig í Laugardal í dag. Þar hefst borun eftir heitu vatni í næstu viku. Í tilkynningu frá Veitum segir að framkvæmdin sé nýr kafli í nær aldarlangri sögu jarðnýtingar á svæðinu.Borunin við Engjateig stendur fram á næsta vor og skömmu síðar hefst borun við Bolholt í Reykjavík. Markmiðið er að tryggja afhendingaröryggi heita vatnsins og mæta þörfum vaxandi samfélags, að því er segir í tilkynningu Veitna.Veitur
Hundrað tonna bor fluttur í Laugardal

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd