Hesthús og græn tún blasa við á fréttamyndum af framkvæmdum sem voru að hefjast í Kópavogi um aldamótin. Á Reykjanesbraut má sjá tvær akreinar en ekki fjórar eins og í dag og Smáratorg er helsta kennileitið sem gefur vísbendingu um hvað er að fara að rísa þarna.25 ár eru síðan verslunarmiðstöðin Smáralind var opnuð í Kópavogi og tilvalið að rifja tímamótin upp með myndefni úr safni RÚV.Í dag er eins og Smáralind hafi alltaf verið þarna en þetta voru heilmiklar framkvæmdir á sínum tíma eins og Finnur Beck, sem þá var fréttamaður Sjónvarps, greinir frá í fréttinni hér fyrir neðan.25 ár eru síðan verslunarmiðstöðin Smáralind var opnuð í Kópavogi og tilvalið að rifja tímamótin upp með myndefni úr safni RÚV.Vinnubúðir voru reistar á lóðinni fyrir verkamenn sem unnu að byggingu Smáralindar, svef