Það má segja að frönsk stjórnvöld og franskir stjórnmálamenn séu milli steins og sleggju þessa dagana. Annars vegar eru það víðtæk mótmæli, sem hófust vegna djúpstæðrar og langvarandi óánægju nemenda og kennara í skólum landsins með yfirfulla bekki, slæmar aðstæður og skort á kennurum svo fátt eitt sé nefnt; þeirra krafa er að aukið fé verði sett í franska menntakerfið.En á sama tíma standa frönsk stjórnvöld frammi fyrir því að þurfa að skera niður opinber útgjöld og koma meira jafnvægi á fjármál ríkisins. Frakkland hefur nefnilega verið að safna skuldum í langan tíma og framúrkeyrslan hefur verið fjármögnuð með útgáfu skuldabréfa og lántökum, sem eru að verða stærri og stærri myllusteinn um háls franskra skattgreiðenda.Sebastian Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, og ríkisstjórn hans er