Á þriðjudagskvöld skrifaði ég, ásamt formönnum SGS og Samiðnar, undir samkomulag við Samtök atvinnulífsins um framlengingu kjarasamninga. Saman förum við fyrir um 60% launafólks á almennum vinnumarkaði. Trúnaðarráð Eflingar samþykkti svo samkomulagið einróma.