Hæg breytileg átt og skúrir milli veðrakerfa

Von er á hægri breytilegri átt og dálitlum skúrum í flestum landshlutum í dag en á morgun nálgast landið lægð og bætir í vind og úrkomu annað kvöld. Þetta er meðal þess sem kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:Í dag erum við á milli veðrakerfa og það er því fremur hæg breytileg átt og dálitlar skúrir í flestum landshlutum. Hiti 3 til 10 stig.Skammt vestur af Hvarfi er vaxandi lægð sem nálgast landið á morgun. Það verður því suðaustanátt og dálítil væta sunnan- og vestanlands en annars bjartviðri. Annað kvöld bætir í vind og úrkomu, víða hvassviðri seint um kvöldið og sums staðar talsverðrigning aðfaranótt mánudags.
Hæg breytileg átt og skúrir milli veðrakerfa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd