Einmanaleiki hefur aukist undanfarna áratugi. Hann hefur áhrif á fólk á öllum aldri og alls staðar í samfélaginu.Að jafnaði upplifa 36% þjóðarinnar sig oft, stundum eða alltaf einmana. Af þeim eru konur gjarnan í meirihluta.Mæður í fæðingarorlofi upplifa sig oftar einmana en áður.Halldór Sigurður Guðmundsson, prófessor við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, var gestur Spegilsins í gær. HÆGT AÐ SKIPTA EINMANALEIKA UPP Í ÞRJÁR GERÐIR Halldór segir að hægt sé að skipta einmanaleika upp í þrjár týpur. Í fyrsta lagi sé það félagslegur einmanaleiki, sem snúist um tíðni þeirra samskipta sem fólk á, fjölda vina og heimsókna. Í öðru lagi tilfinningarlegur einmanaleiki, sem snúist um merkingarbærni samskipta, væntumþykju og tengsl.„Og svo erum við með tilvistarlegan og það er svona alvarlegri